Frambjóðendur X-D í Mosfellsbæ
Við skiptum almennum yfirlýsingum út fyrir skýrar lausnir á mannamáli. Við sýnum svart á hvítu hvað við ætlum að gera og byrjum á því sem skiptir fólk mestu máli.
Hilmar Gunnarsson
1. sæti
Jana Katrín Knútsdóttir
2. sæti
Elísabet S. Ólafsdóttir
3. sæti
Hjörtur Örn Arnarsson
4. sæti
Þórarinn Örn Andrésson
5. sæti
Ásgeir Sveinsson
6. sæti
Magnús Ingi Ingvarsson
7. sæti
Brynja Hlíf Hjaltadótti
8. sæti
Nanna Björt Ívarsdóttir
9. sæti
Elín María Jónsdóttir
10. sæti
Árni Bragi Eyjólfsson
11. sæti
Katrín Dögg Hilmarsdóttir
12. sæti
Jón Magnús Jónsson
13. sæti
Gunnhildur Einarsdóttir
14. sæti
Þorsteinn Birgisson
15. sæti
Halldóra Sif Guðlaugsdóttir
16. sæti
Jódís Lilja Jakobsdóttir
17. sæti
Alexander V. Kárason
18. sæti
Hafrún Hafliðadóttir
19. sæti
Nína Huld Leifsdóttir
20. sæti
Aron Valur Gunnlaugsson
21 sæti
Salome Þorkelsdóttir
22. sæti
Hilmar Gunnarsson
1. sæti
Hilmar Gunnarsson er fæddur og uppalinn í Mosfellsbæ. Mosfellingur í húð og hár. Giftur Oddnýju Logadóttur, kennara í Helgafellsskóla og saman eiga þau þrjá stráka á grunnskólaaldri. Hilmar hefur verið virkur þátttakandi í samfélaginu um árabil. Rak bæjarblaðið Mosfelling síðustu 20 ár og hefur haldið utan um bæjarhátíðina Í túninu heima og félagsheimilið Hlégarð síðustu ár.
Jana Katrín Knútsdóttir
2. sæti
Jana er hjúkrunarfræðingur að mennt með meistaragráðu í viðskiptafræði ásamt því að vera hestafræðingur og leiðbeinandi frá Háskólanum á Hólum. Jana starfar sem hjúkrunardeildarstjóri á Landspítala en hefur jafnframt starfað sem bæjarfulltrúi sl. kjörtímabil. Jana er fædd og uppalin í Mosfellsbæ, er gift og á tvö börn á grunnskólaaldri. Helstu áhugamál eru náttúran í öllum skilningi, hestamennska, útivist, hreyfing, tónlist, bækur, fjölskylda og vinir.
Elísabet S. Ólafsdóttir
3. sæti
Elísabet er sáttamiðlari að mennt og starfaði í 40 ár hjá Ríkissáttasemjara sem skrifstofustjóri og sáttasemjari. Hún hefur tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins bæði í Mosfellsbæ og á landsvísu, lengst af sem formaður Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Mos. Elísabet er formaður Sóknarnefndar Lágafellssóknar og tekur við sem Umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi í sumar. Hún hefur búið í Mosfellsbæ síðan 1979 og tekið virkan þátt í margs konar félagsstarfi í bænum. Elísabet á tvö uppkomin börn, Evu Hrönn sem er lögmaður og Stefán Óla sem starfar sem sérfræðingur hjá Menningar,-nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 
Hjörtur Örn Arnarson
4. sæti
Hjörtur Örn Arnarson er landfræðingur frá Háskóla Íslands, með framhaldsmenntun í kortagerð og landmælingum frá Danmörku og er löggiltur merkjalýsandi. Hjörtur rekur eigið ráðgjafafyrirtæki í Mosfellsbæ og hefur um árabil unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir sveitarfélög og stofnanir um allt land. Hann hefur auk þess verið fyrsti varabæjarfulltrúi á líðandi kjörtímabili og aðalmaður í fræðslunefnd og menningar-, íþrótta- og lýðheilsunefnd. Hjörtur er giftur Klöru Gísladóttur, kennara og eiga þau saman þrjú börn og eitt barnabarn. Helstu áhugamál eru íþróttir og útivist.
Þórarinn Örn Andrésson
5. sæti
Þórarinn Örn er tölvunarfræðingur frá HÍ og með MBA gráðu frá HR. Hann flutti í Mosfellbæ 5 ára og hefur búið hér i bænum svo gott sem síðan.
Þórarinn hefur verið framkvæmdastjóri Verkfræðistofunar Vista, verið framkvæmdastjóri Vista Data Vision og er í dag framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins Oxstone.
Þórarinn er giftur og 3 börn. Fjölskyldan býr í Leirutanga og unir þar hag sínum vel.
Áhugamálin snúast fyrst og fremst um að hafa gaman með fjölskyldu og vinum. Einnig er hann mikill áhugamaður um menningu og lífsins lystisemdir almennt.
Ásgeir Sveinsson
6. sæti
Ásgeir er lærði markaðsfræði og stjórnun í BI Háskóla í Noregi. Hann er núverandi oddviti D-lista í Mosó og er með mikla reynslu í sveitarstjórnarmálum og hefur verið bæjarfulltrúi í 8 ár. Ásgeir hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi í atvinnulífinu og starfar nú sem verkefnastjóri hjá Laka fasteignafélagi. Hann lifir og hrærist í íþróttum, var formaður handboltans í Aftureldingu í 7 ár, situr í stjórn HSÍ og er formaður landsliðsnefndar karla í handbolta. Ásgeir er giftur Helgu Sævarsdóttur hjúkrunar og Lýðheilsufræðingi og eiga þau 3 börn og 3 barnabörn.
Magnús Ingi Ingvarsson
6. sæti
Magnús hefur búið í Mosfellsbæ í 8 ár. Hann er trúlofaður Thelmu Rut Hermannsdóttur og saman eiga þau tvö börn á leik- og grunnskólaaldri. Magnús er slökkviliðsmaður að mennt og fyrrverandi atvinnumaður í bardagaíþróttum. Í dag á hann og rekur fyrirtækið Þitt öryggi sem sérhæfir sig í öryggisnámskeiðum á vinnustöðum og er einnig eigandi bardagaíþróttastöðvarinnar Reykjavík mma. Magnús hefur verið virkur á íþrótta- og velferðarsviði í Mosfellsbæ og má þar nefna umsjón öryggisnámskeiða fyrir starfsmenn bæjarins og sjálfsvarnarnámskeið fyrir ungmenni en hefur einnig starfað með börnum og ungmennum með fjölþættan vanda í áratug á fjölbreyttum sviðum. Helstu áhugamál Magga eru bardagaíþróttir, veiði og jaðaríþróttir.
Brynja Hlíf Hjaltadóttir
7. sæti
Brynja Hlíf Hjaltadóttir er lögfræðingur að mennt með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum og er sjálfstætt starfandi á því sviði. Hún er fædd og uppalin í Mosfellsbæ og býr nú í Leirvogstungu. Saman eiga hún og Egill Ari barn á grunnskólaaldri. Brynja hefur verið varabæjarfulltrúi og aðalmaður í velferðarnefnd síðustu fjögur ár.
Nanna Björt Ívarsdóttir
8. sæti
Nanna Björt Ívarsdóttir er fædd og uppalin í Mosfellsbæ. Hún býr með foreldrum sínum og yngri systur. Nanna Björt stundar nám við lagadeild Háskóla Íslands og vinnur samhliða því í hlutastarfi á leikskóladeild Helgafellsskóla. Nanna Björt hefur verið virkur þátttakandi í samfélaginu, spilaði handbolta upp yngri flokka og síðar með meistaraflokki félagsins, auk þess að vera í skólahljómsveit Mosfellsbæjar á grunnskólaárum sínum.
Elín María Jónsdóttir
9. sæti
Elín María Jónsdóttir hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 2006 með smá viðkomu í Kópavogi. Hún er gift Guðmundi Erni Kjærnested og eiga þau 4 börn á aldrinum 9-16 ára. Elín tók sér hlé frá gullsmíðanámi þegar elsti fæddist og hefur verið heimavinnandi að mestu síðan. Hún hefur verið mjög virk í foreldrastarfi bæði í leik- og grunnskóla ásamt því að sitja í stjórn Heimilis og skóla. Fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar tók hún sæta á lista Sjálfstæðisflokksins og sat fyrir hönd flokksins í fræðslunefnd.
Elín er menntaður jógakennari með áhuga á hreyfingu, útivist, handavinnu og samveru með fjölskyldun
Árni Bragi Eyjólfsson
10. sæti
Árni Bragi hefur búið í Mosfellsbæ frá 2007 með hléum og er nánast uppalinn þar. Árni Bragi er í sambúð með Sigdísi Lind Sigurðardóttur og saman eiga þau tvö börn. Árni Bragi er vel tengdur íþrótta- og skólastarfi í sveitarfélaginu. Árni Bragi starfar sem rekstrarstjóri hjá Aftureldingu og er jafnframt fyrirliði handboltaliðs félagsins. Árni Bragi er menntaður viðskiptafræðingur og hefur mikinn áhuga á íþróttum og rekstri íþróttafélaga. Helstu áhugamál Árna Braga eru útivist með fjölskyldunni og allt sem tengist íþróttum.
Katrín Dögg Hilmarsdóttir
11. sæti
Katrín er fædd og uppalin í Mosfellsbæ. Katrín er gift Pétri Kristni Guðmarssyni og eiga þau tvö börn, Kristínu Erlu og Guðmar Trausta. Katrín hefur víðtæka reynslu af atvinnulífinu, kennslu og þjálfun. Er starfandi golfkennari hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og sölufulltrúi hjá ÓJ&K-ÍSAM. Katrín er menntaður viðskiptafræðingur, kennari og PGA golfkennari. Helstu áhugamál er golf, útivist, skíði, líkamsrækt og ferðalög.
Jón Magnús Jónsson
13.sæti
Jón Magnús Jónsson er fæddur og uppalinn að Reykjum í Mosfellsbæ og hefur alla tíð haft sterka tengingu við bæinn og samfélagið þar. Hann hefur starfað við Reykjabúið um árabil og öðlast þar víðtæka reynslu af búrekstri, en Reykjabúið er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í Mosfellsbæ.
Jón er búfræðingur og viðskiptafræðingur að mennt. Sambýliskona hans er Jóhanna Björt Grétarsdóttir og eiga þau eina dóttur og von á öðru barni.
Hann hefur lengi stundað hestamennsku og er virkur félagi í Karlakór Kjalnesinga.
Gunnhildur Einarsdóttir
14. sæti
Gunnhildur hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 1999. Hún er gift Kristni Smára Sigurjónssyni og eiga þau tvö börn. Gunnhildur er með BSc í íþróttafræði og býr yfir víðtækri reynslu af kennslu og þjálfun, meðal annars úr starfi í endurhæfingarteymi hjá Reykjavíkurborg. Hún stundar nú meistaranám í forystu og mannauðsstjórnun en samhliða því starfar hún sem flugfreyja. Í frítímanum leggur hún áherslu á samveru með fjölskyldu, hreyfingu og útivist.
Þorsteinn Birgisson
15. sæti
Þorsteinn Birgisson er fæddur og uppalinn á Siglufirði. Hann lærði húsasmíði og starfaði við fagið áður en hann lauk námi í rekstrartæknifræði frá Odense í Danmörku. Að því loknu starfaði hann sem tæknifræðingur og stjórnandi, meðal annars hjá Hitaveitu Reykjavíkur/Orkuveitunni.
Þorsteinn er giftur Ragnheiði Steinbjörnsdóttur sjúkraliða. Hann hefur verið virkur í félagsstarfi um árabil og er nú formaður FaMos, félags aldraðra í Mosfellsbæ. Hann hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 2008.
Halldóra Sif Guðlaugsdóttir
16. sæti
Halldóra er uppalin í Mosfellsbæ.
Hún lærði klæðskera í Danmörku og fatahönnun í Listaháskóla Íslands. Eftir nám starfaði hún fyrir þekkt tískuhús bæði í London og í París. Halldóra stofnaði sitt fyrirtæki og vörumerki Sif Benedicta þegar að hún flutti endanlega heim árið 2017. Eftir nám og störf erlendis gat hún ekki hugsað sér að búa annars staðar en hér í bænum okkar. Áhugamál Halldóru eru tengd náttúru og hreyfingu, þá helst hestamennska, boot camp og yoga. Hún er gift Kristni Péturssyni og þau eiga saman 3 börn á grunnskóla aldri.
Jódís Lilja Jakobsdóttir
17. sæti
Jódís hefur búið í Mosfellsbæ í 14 ár og er þriggja barna móðir með Konráði Gunnari Gottliebssyni. Hún er menntuð kennari og með diplóma í áfengis- og vímuefnafræðum. Á sumrin rekur hún Hoppland en á veturna starfar hún sem kennari í Lágafellsskóla. Hún elskar útivist og hreyfingu og nýtur þess að vera virk með fjölskyldunni sinni.
Alexander V. Kárason
18. sæti
Alexander "Lexi" Kárason kemur frá Akureyri hefur búið í Mosfellsbæ frá árinu 2009 og tekið virkan þátt í samfélaginu. Hann er þriggja barna faðir, kona hans er Árný Elva Ásgrímsdóttir og hafa verið saman síðan 1998. Hann er frumkvöðull og hefur byggt upp og rekið fjölbreytt fyrirtæki, þar á meðal í Pappírsframleiðsla, stálsmíði og innfluttning. Samhliða því hefur hann í mörg ár unnið með ungu fólki í Mosfellsbæ með verkefni í Bílskúrnum og tengja það við Motorsportið sem er hans helsta áhugamál.
Hafrún Hafliðadóttir
19. sæti
Hafrún Hafliðadóttir hefur verið búsett í Mosfellsbæ undanfarin 11 ár. Hún er þriggja barna móðir og eru börn hennar á aldrinum 4–11 ára. Börnin sækja bæði leik- og grunnskóla í bænum og taka jafnframt þátt í fjölbreyttu íþróttastarfi innan Mosfellsbæjar, þannig að tengsl fjölskyldunnar við bæinn eru sterk.
Hafrún er með BA-gráðu í sálfræði, MS-gráðu í sálfræðikennslu auk diplómagráðu í faggreinakennslu. Hún starfar í Mosfellsbæ sem kennari og hegðunarráðgjafi, sem hefur veitt henni góða innsýn í starfsemi sem snýr að börnum og fjölskyldum í sveitarfélaginu.
Helstu áhugamál Hafrúnar er útivist, skíði, laxveiði og að ferðast.
Nína Huld Leifsdóttir
20. sæti
Nína Huld er fædd og uppalin mosfellingur í húð og hár, trúlofuð Sumarliða Kristmundssyni, saman eiga þau Ídu Sóleyju . Nína er Hársnyrtimeistari og starfar við það samhliða mörgu öðru. Nína er virk í bæjarfélaginu og hefur gaman að því að taka að sér ný og spennandi verkefni sem tengjast bænum okkar .
Aron Valur Gunnlaugsson
21. sæti
Aron Valur er fæddur og uppalinn í Mosfellsbæ. Mosfellingur í húð og hár. Hann fæddist sama dag og fjölskyldan flutti í bæinn. Hann hefur verið virkur í íþróttalífi bæjarins frá ungum aldri, spilað með öllum yngri flokkum í handbolta og fótbolta hjá Aftureldingu og leikur í dag með meistaraflokki karla í handbolta. Íþróttirnar hafa kennt honum aga, liðsheild og metnað sem hann nýtir í daglegu lífi. Hann starfar sem stuðningsfulltrúi í Lágafellsskóla í hlutastarfi og hefur þar öðlast dýrmæta reynslu af starfi með börnum og ungmennum. Samhliða því starfar hann við að skemmta fólki víðs vegar um landið og framleiða efni fyrir samfélagsmiðla, bæði fyrir sjálfan sig og önnur fyrirtæki.
Salome Þorkelsdóttir
22. sæti
Salome fæddist í Reykjavík 3. júlí 1927 en flutti ung í Mosfellsdalinn. Eiginmaður hennar var Jóel K. Jónsson garðyrkjubóndi. Þau eignuðust 3 börn, Önnu, Jóel og Þorkel sem er látinn. Hún sat í hreppsnefnd Mosfellshrepps frá 1966 - 1982 og var varaoddviti frá 1978 - 1981 og oddviti frá 1981 - 1982. Hún var formaður Samtaka sveitarfélaga í Reykjneskjördæmi um árabil. Hún var alþingismaður frá 1979 - 1995 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og gengdi fjölmörgum trúnaðarstörfum, td. var hún forseti sameinaðs þings og forseti Alþingis.






























